Krossgötur mánudaginn 16. mars kl. 13.00. Magnús Lyngdal Magnússon, sagnfræðingur og tónlistargagnrýnandi fjallar um Passíur Johanns Sebastians Bach. Johann Sebastian Bach (1685-1750) starfaði lengst af í Leipzig (1723-1750) og sem kantor Tómasarkirkjunnar hafði hann með höndum skipulagningu kirkjutónlistar í fjórum höfuðkirkjum borgarinnar, Tómasarkirkjunni, Péturskirkjunni, Nikulásarkirkjunni og „Nýju kirkjunni“ (nefnd Matteusarkirkjan í dag). Þar samdi hann meðal annars tvær passíur sem kenndar eru við guðspjallamennina Jóhannes og Matteus (passían sem kennd er við guðspjallamanninn Markús er glötuð). Jóhannesarpassían (frá 1724) og Matteusarpassían (frá 1727) eru risavaxin kirkjutónverk sem tónskáldið samdi til flutnings á föstudaginn langa. Í báðum verkum er píslarganga Krists tónsett. Tónlistin í passíunum er byggð upp með svipuðum hætti og í um 200 kirkjukantötum sem Bach samdi og skiptist þannig ýmist í söngles eða aríur, kórþætti og sálmalög (kórala). Í erindinu verður fjallað um þessi tvö verk, tilurð þeirra og flutningshefð með tóndæmum. Þá verður einnig fjallað um helstu hljóðritanir á passíunum tveimur og kannað hvort túlkunarsaga verkanna hafi eitthvað breyst.