Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl.11. Sameiginlegt upphaf í kirkjunni þar sem Barnakór Neskirkju syngur auk félaga úr kirkjukór Neskirkju sem syngja og leiða söng undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólanum stýrir Kristrún Guðmundsdóttir með Ara Agnarssyni sem leikur undir söng.
Samfélag og hressing á Torginu eftir stundirnar.