Fyrsta sunnudag í aðventu er hátíðarmessa og barnastarf kl. 11 í Neskirkju. Drengjakór Reykjavíkur syngur, undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar, ásamt Kór Neskirkju. Stjórnandi og organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét Heba Atladóttir og Ari Agnarsson. Kaffi, piparkökur og randalínur að messu lokinni.