Fimmtudaginn 21. febrúar kl. 17 verður málþing á vegum Samráðsvettvangs trú- og lífsskoðunarfélaga með yfirskriftinni Umhverfismál og trú.
Frummælendur á þinginu eru:
Halldór Þorgeirsson, formaður Loftlagsráðs og fyrrverandi framkvæmdastjóri alþjóðasamvinnumála hjá skrifstofu Loftlagssamnings Sameinuðu þjóðanna,
Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor í guðfræðilegri siðfræði við Guðfræði- og trúarbragðadeild Háskóla Íslands
og Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði.

Séra Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, prestur í Neskirkju, stýrir málþinginu.

Umræða um umhverfismál og loftlagsbreytingar hefur verið áberandi í íslensku þjóðfélagi að undanförnu. Trú- og lífsskoðunarfélög láta sig þessi mál varða, þar sem þau snerta lífsgæði allra íbúa jarðar og framtíð hins byggilega heims. Margir trúarleiðtogar hvetja til umhugsunar og viðhorfsbreytinga í þessum efnum, bæði á alþjóðavettvangi og heima fyrir.

Samráðsvettvangurinn hefur að markmiði að stuðla að góðum og friðsamlegum samskiptum milli trú- og lífsskoðunarfélaga hér á landi, að efla umburðarlyndi og virðingu milli fólks með ólík lífsviðhorf og standa vörð um trúfrelsi og önnur mannréttindi. Tuttugu trúfélög og lífsskoðunarfélög eru aðilar að samráðsvettvangi.

Með málþinginu vilja trú- og lífsskoðunarfélög, sem eiga aðild að Samráðsvettvang-inum, vekja upp spurningar meðal almennings um þau gildi sem liggja til grundvallar friðsamlegu þjóðfélagi, sem gengur um umhverfi sitt af ábyrgðartilfinningu og virðingu.

Málþingið er öllum opið og léttar veitingar verða framreiddar í hléinu.