Messa og sunnudagaskóli kl. 11 sunnudaginn 7. maí. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng, organisti er María Kristín Jónsdóttir. Sr. Steinunn A. Björnsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Textar dagsins fjalla um von og huggun. Þá má lesa á vef kirkjunnar. Sunnudagaskólinn verður líflegur að venju. Hann er í umsjá Stefaníu Steinsdóttur, Katrínar H. Ágústsdóttur og Ara Agnarssonar.  Samvera á kaffitorginu eftir stundirnar.

Í lexíu dagsins stendur:

Þeir sem sá með tárum
munu uppskera með gleðisöng.