Krossgötur miðvikudaginn 19. október kl. 13.30. Þórir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Rauða Krossins. Fáir þurfa að kunna betur til verka við að efla manndáð og mannauð, en þeir sem vinna með sjálfboðaliðum. Þórir segir frá merkilegu starfi Rauða krossins á þessu sviði og lýsir því hvert hreyfingin stefnir í viðleitni sinni til að bæta kjör okkar minnstu systkina. Kaffiveitingar.