Hádegistónleikar verða í Neskirkju miðvikudaginn 12. október. Á efnisskrá er meðal annars Tríó sónata Bach nr 1 í Eb dúr og Prelúdía og fúga í G – dúr. Tónleikarnar verða síðan á hálfsmánaðar fresti fram í desember þar sem boðið verður upp á Bach í bland við einn annan tónhöfund í hvert sinn. Steingrímur Þórhallsson organisti situr við orgelið.