Messa og barnastarf á Biblíudaginn kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Katrín Helga og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu. Fulltrúar frá Gídeon munu gefa fermingarbörnum Nýja testamenti og kynna starf hreyfingarinnar í kaffinu.