Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestarnir Sigurvin L. Jónsson og Jakob Á. Hjálmarsson þjóna og prédika saman. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Ásta Kristensa, Katrín Helga og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.