Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni.Fermd verður Dagbjört Ellen Júlíusdóttir. Dr. Rodney Petersen, forstöðumaður Bostan Theological Institute og dr. Raymond Helmick, Jesúitaprestur og sáttsemjari í alþjóðlegum deilumálum, flytja ávörp. Eftir messu verður aðalsafnaðarfundur Nessóknar. Samfélag og kaffisopi á Torginu.