Messa og barnastarf kl. 11. Allra heilaga messa. Minnst verður látinna ástvina í prédikun og bænagerð. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Einsöngur Davíð Ólafsson nemi í Söngskólanum. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt með sr. Toshiki Thoma. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.