Skírdagskvöld
Messa kl. 2o.00. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.

Föstudagurinn langi
Guðsþjónusta kl. 11.00. Píslarsagan lesin. Hallveig Rúnarsdóttir syngur einsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur dr. Sigurður Árni Þórðarson.

Páskadagur
Hátíðarmessa kl. 8.00. Hátíðartón. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.

Morgunverður og páskahlátur eftir messu.

Upprisutónleikar kl. 10.00. Steingrímur Þórhallsson organisti flytur tónlist.

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Stundin er í umsjón sr. Sigurvins Jónssonar æskulýðsprests. Páskaeggjaleit að lokinni guðsþjónustu.

Annar í páskum
Fermingarmessa kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestar sr. Örn Bárður Jónsson og dr. Sigurður Árni Þórðarson.