Hinir árlegu saltfiskdagar hófst á ný s.l. föstudag 24. febrúar. Hátt í fjörtíu manns mættu í hádeginu og snæddu ljúfengan suðrænn saltfiskur (bacalao). Saltfisksdagar munu halda áfram á föstudögum út föstuna og hefst borðhald kl. 12. Þér er hér með boðið að koma og njóta góðra rétta á sanngjörnu verði.

Fastan sem hófst í kjölfar sunnudagsins 19. febrúar og stendur í 7 vikur er forn hefð þar sem fólk er hvatt til að íhuga líf Krists, þjáningu hans og dauða. Föstur eru þekktar innan flestra trúarbragða. Kristnir menn hafa fastað á kjöt sbr. kjötkveðjuhátíð sem markar upphaf föstunnar. Fastan hefur komið okkur Íslendingum vel í gegnum aldirnar því með henni skapaðist tækifæri til markaðssetningar á saltfiski í Evrópu, einkum í hinum kaþólsku löndum. Lífið er saltfiskur, segir í máltækinu. Saltfiskur hefur margskonar táknræna merkingu fyrir okkur. Hann skapar fólki vinnu og gjaldeyri, er neytt af trúuðu fólki í fjarlægum löndum sem kemur saman til að borða en máltíðin og borðsamfélagið er miðlægt í kristinni trú.

Saltfiskdagar í Neskirkju eru hugsaðir út frá þessari sögu og samhengi. Í ár mun gestur eða heimamaður í Neskirkju segja fiskisögu öðrum til gleði, ánægju og fróðleiks. Vertu velkomin/n og taktu endilega með þér gesti!