Fyrsta opna hús eldri borgara á árinu 2012 verður miðvikudaginn 11. janúar. Efnið varðar yfirskilvitlega reynslu. Hvernig eigum við að skilja hana og túlka? Sr. Þórhallur Heimisson er sóknarprestur í Hafnarfirði og kunnur fræðimaður og bókahöfundur. Hann kemur og miðlar okkur af fræðasjóði sínum. Kaffi kl. 15 og síðan fræðsla og umræður. Allir velkomnir.