Útskrifað var úr Farskóla leiðtogaefna fimmtudaginn 30. mars sl. en þar útskrifuðust 5 (1/2) leiðtogi úr unglingastarfi Neskirkju. Þær Ásta Kristensa Steinsen, Daníel Ágúst Gautason (en hann sækir vikulega starf í Neskirkju þó hann komi úr Bústaðasókn), Harpa Lind Ólafsdóttir, Katrín Helga Ágústsdóttir, Laufey Soffía Pálsdóttir og Sólrún Rós Eiríksdóttir. Við óskum leiðtogunum hjartanlega til hamingju með áfangann og við væntum mikils af þeim á komandi árum. Einnig voru Guðjón Andri og Gunnar Óli heiðraðir fyrir þeirra starf en þeir hafa unnið mikið sjálfboðastarf fyrir skólann í vetur.