Veglegur hópur unglinga og leiðtoga frá Neskirkju sóttu nú um helgina Vormót ÆSKR í Vatnaskógi og má fullyrða að vesturbæjingarnir skildu ekki sitt eftir á mótinu. NeDó leiðtogarnir okkar stýrðu kvöldguðþjónustu á föstudaginn, skipulögðu skógarleiki á laugardagsmorgun, héldu uppi kvöldvöku á laugardaginn auk þess að vinna hörðum höndum að framkvæmd mótsins. Á laugardagskvöldinu sýndu Neskirkjukrakkarnir tvö myndbönd sem bæði eru á myndasíðu BaUN en annað þeirra er til heiðurs Ninnu Sif sem starfaði hér í Neskirkju og kom á mótið með hóp krakka frá Selfosskirkju.