Messa og barnastarf kl. 11. Háskólakórinn syngur og leiðir safnaðarsöng. Stjórnandi Gunnsteinn Ólafsson. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón Sigurvin, María, Andrea og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á torginu eftir messu.