Unglingastarf Neskirkju fór í vorferð á miðvikudagskvöldið 21. maí með ÆSKR. Leiðin lá á Úlfljótsvatn þar sem skátar tóku á móti okkur og veittu okkur aðstöðu til að grilla, hlaupa ratleik, fara út á báta og eiga góða stund við næstumþví varðeld (skátunum tókst ekki að kveikja upp). Við tókum að sjálfsögðu fullt af myndum í velheppnaðri ferð.