Skráning er hafin á síðari tvö leikjanámskeið Neskirkju sem verða í viku 31 (Námskeið III: 30. Júlí-03. Ágúst) og viku 32 (Námskeið IV: 07.-10. Ágúst). Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 6-10 ára (fædd 1997-2001) og hafa Sigurvin Jónsson guðfræðingur og Sunna Dóra Möller guðfræðinemi umsjón með þeim ásamt hópi unglinga. Námskeiðið er hálfan daginn frá kl. 13:00-17:00 og gjald fyrir hverja viku eru kr. 3.500,- Innritun fer fram í Neskirkju alla virka daga í síma 511-1560 eða á neskirkja@neskirkja.is. Myndir af Júlínámskeiðunum má nálgast á myndasíðu barnastarfsins.

Á námskeiðunum gefst börnunum kostur á að kynnast kirkjunni og boðskap hennar í leik og starfi, auk þess að öðlast dýrmæt tengsl við nýja félaga. Áhersla er lögð á virðingu og vináttu á námskeiðunum og miðast leikir og verkefni við að efla og styrkja hópinn og einstaklinginn. Meðal annars verður farið í hópleiki, þrautaleiki, skapandi verkefni unnin og farið er í strætóferð. Einu sinni á námskeiði er farið í ferð út fyrir borgina og slegið upp grillveislu. Námskeiðunum er stjórnað af reyndu fólki sem hefur starfað með börnum á ýmsum vettvangi.