Föstudaginn 2. mars verður töfraður fram nýr suðrænn, saltfiskréttur í hádeginu á Torgi Neskirkju.
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, verður sérstakur gestur og spjallar við matargesti.

Um aldir hafa Íslendingar framleitt saltfisk á Evrópumarkað, sem einkum var og er seldur til kaþólsku landanna, þar sem fastan hefur djúpar rætur og menn minnka kjötneyslu á föstunni í kjölfar kjötkveðjuhátíðarinnar – carnival. Tengsl föstu og saltfisks, viðskipta og trúar, eiga sér því langa sögu.

Margrét Þrastardóttir, matráðskona í Neskirkju, mun töfra fram suður-evrópska saltfiskrétti á föstunni.

Máltíðin verður seld á kr. 1.200 en af þeirri upphæð mun Neskirkja láta hluta renna til Hjálparstarfs kirkjunnar.

Sem sagt: Saltfiskur í hádeginu á föstudögum alla föstuna.

Verið velkomin í saltfisk í Neskirkju!

Á vef Þjóðkirkunnar er viðtal við sr. Örn Bárð um Saltfiskdagana á svonefndu Vefvarpi. Smellið hér.