Biskup Íslands og Prestafélagið hafa sent frá sér þessa yfirlýsingu:

Yfirlýsing frá Þjóðkirkjunni og Prestafélagi Íslands.

Biskup Íslands og formaður Prestafélags Íslands harma það að stór hópur klámframleiðanda hyggist koma hingað til lands í tengslum við vinnu sína og halda fund eða ráðstefnu. Klám gengur í berhögg við kristinn mannskilning. Því fylgir alltaf lítilsvirðing á manneskjunni en klámiðnaðinum getur einnig fylgt ýmis nauðung, mansal og misnotkun á börnum.

Við fögnum því að ráðamenn hafi brugðist við fréttum af heimsókninni og borgarstjóri hafi sett af stað rannsókn á þeim er tengjast þessari ráðstefnu. Við hvetjum eindregið til þess að leitað verði allra leiða til að koma í veg fyrir að hér verði haldin ráðstefna klámframleiðanda.

Klám er þjóðfélagsmein sem kemur okkur öllum við. Þessi fyrirhugaði fundur erlendra klámframleiðanda er aðeins lítill angi af því. Hann er harkaleg áminning um að við höldum vöku okkar og tökum höndum saman gegn klámi, í hvaða mynd sem það birtist. Íslensk þjóðarsál hefur viðbjóð á klámi og kynlífsnauðung. Nú reynir á að við séum sjálfum okkur samkvæm.

Við hvetjum íslensku þjóðina til að standa saman gegn því að landið okkar verði leiksvið klámmynda.

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands

Ólafur Jóhannsson, formaður Prestafélags Íslands