Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Messa 12. júní

Messa kl. 11. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Skúli S. Ólafsson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélaga og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |9. júní 2016 11:31|

Messa 5. júní

Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Prestur sr. Sveinn Valgeirsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2. júní 2016 09:07|

Skráning vegna ferminga 2017

Miðvikudaginn 1. júní hefst skráning vegna ferminga 2017. Hægt er að hringja í síma 511-1560 eða koma við í Neskirkju við Hagatorg á skrifstofutíma milli klukkan 10 og 15. Mögulegt er að taka frá fermingardag um leið og barn er skráð í fræðsluna. Fermt verður laugardaginn 8. apríl (fyrir pálmasunnudag) kl. 11.00 [...]

By |1. júní 2016 09:29|

Blóm og söngur

Átt þú eftir að kaupa sumarblóm? Föstudagskvöldið 27. maí verður blásið til blómasölu í safnaðarheimili Neskirkju. Þá mun Kór Neskirkju flytja glaðleg vor- og sumarlög kl. 20 og síðan tekur við hin árlega blómasala þar sem sumarblóm og kryddjurtir verða til sölu. Blómin eru ræktuð af kórstjóranum sjálfum, Steingrími Þórhallssyni, [...]

By |27. maí 2016 12:49|

Messa 29. maí

Messa kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Séra Auður Inga Einarsdóttir þjónar fyrir altari. Viðar Stefánsson guðfræðingur predikar. Kaffiveitingar á torginu að lokinni messu.

By |26. maí 2016 10:35|

Fermingardagar 2017

Brátt hefst skáning vegna ferminga næsta vor 2017. Að venju munum við vera með fermingarnámskeið í lok sumar áður en skólinn hefst. Fermingardaga vorið 2017 eru sem hér segir: Laugardagur fyrir pálmasunnudag 8. apríl kl. 11 og kl. 13:30 Annar í páskum 17. apríl kl. 11:00 Sunnudagur eftir páska 23. [...]

By |19. maí 2016 12:29|

Guðsþjónusta Ísfirðinga 22. maí

Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju ásamt ísfirskum sönghóp leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Magnús Erlingsson, prestur Ísfirðinga, predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Skúla S. Ólafssyni. Samfélag á Torginu. Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verður haldin í safnaðarheimilinu að lokinni messu.

By |19. maí 2016 10:46|

Aðalsafnaðarfundur

Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verðu haldin sunnudaginn 22. maí n.k. og hefst í kjölfar messu safnaðarins eða kl. 12.20. Venjulega aðlfundastörf. Allir velkomnir.

By |18. maí 2016 08:19|

Sálumessa eftir Mozart

Sunnudaginn 22. maí kl. 17.00 mun Kór Neskirkju og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna flytja Sálumessu Wolfgangs Amadeusar Mozarts. Flytjendur á tónleikunum ásamt Kór Neskirkju eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir alt, Gissur Páll Gissurarson tenór og Fjölnir Ólafsson bassi. Stjórnandi er Oliver Kentish, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna. Sálumessa eða Requiem er síðasta [...]

By |17. maí 2016 17:02|

Opinberun, upplyfting, ummyndun.

Annan í hvítasunnu kl. 18. Dagskrá helguð verkum Hrafnkels Sigurðssonar. Dr. Halldór Björn Runólfsson listfræðingur flytur erindi um verk Hrafnkels. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Dr. Skúli S. Ólafsson stýrir samkomunni.

By |11. maí 2016 19:01|