Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Konan á bakhliðinni: Valgerður biskupsfrú og allar hinar konur Íslands

Krossgötur miðvikudaginn 22. mars kl. 13.30. Auður Styrkársdóttir, stjórnmálafræðingur og forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands er fátt mannlegt óviðkomandi og hún hefur tekið virkan þátt í baráttunni fyrir auknu jafnrétti og bættu samfélagi. Hér ræðir hún um Valgerði Jónsdóttur biskupsfrú sem lét mikið að sér kveða um sína daga. Kaffiveitingar.

By |20. mars 2017 16:57|

Er munur á föstu og megrun?

Námskeið um tengsl matar og trúar í Neskirkju verður haldið á fimmtudagskvöldum , 23. mars – 13. apríl og hefst kl. 20.00. Fasta, matarframleiðsla, sanngjörn skipti, matarnýting, matarsóun, mataruppskriftir verða á dagskrá. Sigurlín Ívarsdóttir, heilsukokkur og prestur,fjallar um muninn á föstu og megrun og trúarhugmyndir í matar-og megrunartísku. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi [...]

By |20. mars 2017 11:38|

Messa 19. mars

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organist. Prestur Skúli S. Ólafsson. Söngur og gleði í sunnudagskólanum. Umsjón Stefanía, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |17. mars 2017 09:32|

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar

Krossgötur miðviudaginn 15. marsk kl. 13.30. Mörður Árnason, íslenskufræðingur kemur í heimsókn. Eitt merkasta bókmenntaframlag í seinni tíð er útgáfa Marðar á Passíusálmunum frá því 2015. Mikil vinna var lögð í útskýringar og aðgengilegan texta. Mörður segir frá kynnum sínum af Hallgrími og fjallar um verkið. Kaffiveitingar.

By |14. mars 2017 11:36|

Messa og sunnudagaskóli 12. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Barnastarfið er í umsón Stefaníu Steinsdóttur, sr. Skúla Ólafssonar og Ara Agnarssonar. Rebbi mætir fílefldur til leiks, Nebbi og aðrir góðir gestir. Mikill söngur og gleði. Samfélag á [...]

By |8. mars 2017 15:06|

Neskirkja: höfundur hennar og sérstaða í byggingarsögunni.

Fimmtudaginn 9. mars kl. 19:57 flytur Pétur Ármannsson arkitekt erindi í Neskirkju. Þar ræðir hann ræðir sögu, hönnun og útlit Neskirkju, sem markaði tímamót á ýmsan hátt, bæði hin nýja borgarsókn og svo hið móderníska útlit kirkjunnar. Eins og á við um öll mannleg verk, tengjast ýmsar sögur þessari byggingu og hún [...]

By |7. mars 2017 10:34|

Borg og byggð, skipulag, verkefni og áskoranir

Krossgötur miðvikudaginn 8. mars kl. 13.30. Hilmar Þór Björnsson, arkitekt, er afkastamikill í sínu fagi og hefur sterkar skoðanir á því hvernig á að skipuleggja byggð í þéttbýli. Hann er annar  höfundurinn að Grandahverfinu hér í Vesturbænum og heldur úti bloggi þar sem hann ræðir útlit og fyrirkomulag við hönnun húsnæðis á [...]

By |7. mars 2017 10:16|

Fjölskyldumessa á æskulýðsdaginn

Á æskulýðsdaginn, þann 5. mars, verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 með þátttöku æskulýðsstarfsins. Barnakórar syngja undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur, undirleikari er Ari Agnarsson. Yfirskriftin er Trúum með hjartanu. Umsjón með guðsþjónustunni hafa Stefanía Steinsdóttir og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Að guðsþjónustu lokinni býður æskulýðsfélagið upp á tertu í líki Neskirkju, sem [...]

By |2. mars 2017 18:18|

Tímamótakvöld í Neskirkju: Gerður Helgadóttir 

Fjallað verður um verk Gerðar Helgadóttur í Neskirkju fimmtudaginn 2. mars kl. 19:57 í tilefni af 60 ára afmæli kirkjunnar, sem var vígð árið 1957. Suðurglugginn í kirkjunni er meðal stærstu verka Gerðar og meðal síðustu verka hennar. Sýnt verður úr heimildarmynd um þennan kunna listamann og erindi flutt. Háskólakórinn syngur í [...]

By |28. febrúar 2017 15:59|

Félag eldri borgara

Krossgötur miðvikudaginn 1. mars kl. 13.30. Gísli Jafetsson, formaður Félags eldri borgara kemur í heimsókn. Málefni eldri borgara varða okkur öll og fátt veitir betri innsýn í samfélagsgerð og siðferði en þjónustan við þau sem byggðu upp þau gæði sem síðari kynslóðir njóta. Gísli segir okkur frá verkefnum Félags eldri borgara. Kaffiveitngar.  

By |27. febrúar 2017 14:25|