Sunndagaskólinn að byrja!
Sunnudagaskólinn hefst á nýjan leik Neskirkju þann 7. september n.k.. Söngvar, leikir, brúðuleikrit, sögur og föndur. Umsjón í vetur verður í höndum Karólínu, Karenar, Nönnu og Kristrúnar. Sunnudagaskólinn byrjar að venju í messunni kl. 11. Verið hjartanlega velkomin í sunnudagaskólann!
Sr. Jón Ómar Gunnarsson setur í embætti
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Innsetning sr. Jóns Ómars Gunnarssonar í starf prests við Neskirkju. Sr. Skúli S. Ólafsson þjónar ásamt Jóni Ómari sem predikar. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir prófastur flytur ávarp. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Meðhjálpari er Rúnar Reynisson. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í safnaðarheimili [...]
Kveðjumessa
Messa sunnudaginn 31. ágúst kl. 11:00. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir predíkar og kveður söfnuðinn. Sr. Skúli S. Sigurðsson þjónar með henni. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Við kveðjum hana með veglegu kirkjukaffi að messu lokinni.
Messa sunnudaginn 24. ágúst
Messa kl. 11. Messuliðirnir verða kynntir. Kór Neskirkju leiðir sönginn og flytja stólvers undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Kaffi og meðlæti á Torginu að messu lokinni. Prestar eru sr. Skúli S. Ólafsson og sr. Jón Ómar Gunnarsson
Messa sunnudaginn 17. ágúst kl. 11
Messa kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn og flytja stólvers undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Kaffi og meðlæti á Torginu að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson
Messa þann 10. ágúst
Sunnudaginn 10. ágúst verður messa kl. 11 í Neskirkju. Tvö ungmenni verða fermd í messunni. Sr. Jón Ómar Gunnarsson, þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, organista.
Guðsþjónusta sunnudaginn 20. júlí.
Guðsþjónusta með kaffihúsasniði kl. 11. Sunnudag þennan ber upp á Þorláksmessu að sumri og verður fjallað um þá köllun sem mætir hverju okkar í lífinu. Félagar úr Kór Neskirkju syngja við raust. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Fyrsta messa sr. Jóns Ómars Gunnarssonar
Messa kl. 11. Fyrsta messa sr. Jóna Ómars Gunnarssonar í Neskirkju. Við bjóðum hann velkominn. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallssonar. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Kaffihúsaguðsþjónusta 6. júlí
Kaffihúsaguðsþjónusta kl. 11:00 þar sem fólk situr með bollann og tekur þátt í helgihaldinu. Fjallað verður um texta dagsins og þeir settir í samhengi við samtímasögu auk predikunar. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Ef veður leyfir verðum við í garðinum við kirkjuna. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Messa 29. júní
Kaffihúsamessa í safnaðarheimilinu. Þátttakendur sitja við borð og geta fengið sér hressingu meðan á messu stendur. Ungir piltar úr sókn aðstoða við messuhald og Þorgeir Tryggvason leikur á gítar undir söng. Félagar úr kór Neskirkju leiða sönginn. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Litir og blöð fyrir yngsta fólkið. Verið [...]