Krossgötur
Krossgötur hefjast þriðjudaginn 14. september og verða kl. 13. að venju. Dagskrá Krossgatna í haust er að mestu lyti unnin af heimafólki. Við segjum frá merkum prersónum Biblíu og íslenskrar kirkjusögu og miðlum frásögum af ferðalögum. Sr. Skúli S. Ólafsson ríður á vaðið og segir frá sr. Jóni Þordsteinssyni píslarvott [...]
Sunnudagurinn 12. september
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Prestur sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Söngur, leikir, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Kaffisopi á Torginu efit guðsþjónustu.
Upphaf sunnudagaskólans
Sunnudaginn 5. september verður guðsþjónusta og upphaf sunnudagaskólans í vetur. Eftir sameiginlegt upphaf færir sunnudagaskólinn sig yfir í safnaðarheimilið þar sem við tekur söngur, leikur og sögur. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Hilda María Sigurðardóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Kristrún Guðmundsdóttir auk Ara Agnarssonar sem leikur undir. Í guðsþjónustunni syngja félagar úr [...]
Guðsþjónusta 22. ágúst
Sunnudaginn 22. ágúst er guðsþjónusta kl. 11. Við köllum hana "messu fyrir óvana" og ætlum að útskýra nokkur atriði messunnar um leið og við höfum venjulega guðsþjónustu. Lögð er áhersla á léttan söng. Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega boðin velkomin. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Láru [...]
Guðsþjónusta 8. ágúst
Guðsþjónusta er í kirkjunni kl. 11 þann 8. ágúst. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Lára Bryndís leysir Steingrím Þórhallsson af í starfi organista og kórstjóra í ársleyfi hans og Neskirkja býður hana velkomna til starfa. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. [...]
Guðsþjónusta um Verslunarmannahelgi
Guðsþjónusta kl. 11, sunnudag um Verslunarmannahelgi. Helgihaldið verður í garðinum ef veður leyfir, annars í safnaðarheimili með kaffihúsasniði. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Prjónamessa í safnaðarheimili
Guðsþjónustan kl. 11 þann 25. júlí er hin árlega prjónamessa. Hún fer fram í safnaðarheimili, setið er við borð og kaffi og te á boðstólnum. Fólk er hvatt til að taka með handavinnu. Félagar úr prjónahópi kirkjunnar taka þátt í guðsþjónustunni. Blöð og litir í boði fyrir yngsta hópinn. Félagar [...]
Guðsþjónusta 18. júlí – Tákn, undur og trú
Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Umfjöllunarefni er tákn og bókstafstrú. Fólk á öllum aldri velkomið. Litir og blöð fyrir þau yngstu. Hressing og samfélag á torginu eftir guðsþjónustuna.
Guðsþjónusta 11. júlí
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Ef veður leyfir verðu guðþjónustan út í garði fyrir utan safnaðarheimilið. Kaffiveitingar.
Guðsþjónusta 4. júlí
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Kaffisopi á Torginu að lokinni guðsþjónustu.