Guðsþjónusta og barnastarf fellur niður 16. janúar vegna sóttvarna
Í ljósi fjölda smita í samfélaginu höfum við ákveðið að fella niður guðsþjónustu og sunnudagaskóla þann 16. janúar. Send verður út hugvekja á facebook síðu Neskirkju, facebook.com/neskirkja. Biskup Íslands bað söfnuði skömmu fyrir áramót landsins að messa ekki vegna þess hve smitstuðull er hár í landinu. Enn hefur ekki náðst [...]
Helgihald 9. janúar fellur niður
Helgihald fellur niður þann 9. janúar vegna sóttvarna.
Helgihald um jól
Á aðfangadag verður aftansöngur kl. 18 og miðnæturmessa kl. 23.30. Á jóladag verður hátíðarmessa kl. 14. Farið verður að gildandi sóttvarnarreglum. Við aftansöng kl. 18 verður farið fram á hraðpróf. Hámarksfjöldi kirkjugesta er 200. Við aðrar athafnir er kirkjan hólfaskipt og hámarksfjöldi er 100. Grímuskylda er við allar athafnir og [...]
Jólastund barnanna og jólaball sunnudagaskólans fellur niður
Vegna sóttvarnartakmarkana neyðumst við til að fella niður jólastund barnanna á aðfangadag og jólaball sunnudagaskólans. Vonandi er það í síðasta sinn sem við þurfum að gera slíkt.
Fjórði sunnudagur í aðventu
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, söngur og gleði í sunnudagskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Guðsþjónustugestir ganga inn um kirkjudyr en sunnudagaskólinn verður alfarið í safnaðarheimili og ganga þátttakendur beint þar [...]
Fjölskylduguðsþjónusta með barnakór og jólasálmum
Sunnudaginn 12. desember verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur, organista. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir leiðir stundina með starfsfólki úr barnastarfi. Þar verður jólaleikrit, jólasálmar og söngvar og jólasagan. Kirkjan verður hólfaskipt til að gæta sóttvarna. Verið velkomin.
Guðni Elísson á Krossgötum
Krossgötur þriðjudaginn 7. desember kl. 13.00 Guðni Elísson, rithöfundur, les upp úr bók sinni Ljósgildran og ræðir um hana. Eitt stærsta viðfangsefni bókarinnar eru guðdómurinn og trúarlífið. Jólakruðerí og heit súkkulaði. Umsjón sr. Skúli S. Ólafsson.
Hallgrímur Helgason og listin að deyja
Sunnudaginn 5. desember kl. 13. mun Guðni Elísson prófessor í almennri bókmenntafræði ræða við Hallgrím Helgason, rithöfund og myndlistarmann um sýningu hans, Það þarf að kenna fólki að deyja. Á sýningu Hallgríms, gefur að líta málverk og teikningar sem kviknuðu út frá andláti föður listamannsins, sem lést á síðasta ári. Hallgrímur [...]
Annar í aðventu
Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur, leikir og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Arni Agnarsson og Kristrún Guðmundsdóttir. Guðsþjónustugestir ganga inn um kirkjudyr en sunnudagaskólinn verður alfarið í safnaðarheimili og ganga þátttakendur beint þar inn. Við leggjum [...]
Krossgötur
Krossgötur þriðjudaginn 30. nóvember kl. 13. Áslaug Gunnarsdóttir, píanókennari, kynnir og leikur verk á flygillinn í kirkjunni. Kaffiveitingar á Toginu.