Messa á þrenningarhátíð
Messa kl. 11 á þrenningarhátíð, 12. júní. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sjómannasálmar einnig sungnir í tilefni dagsins sem er líka sjómannadagurinn. Litir og blöð fyrir yngstu kynslóðina. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Hressing og samfélag á torginu að lokinni messu.
Helgihald um hvítasunnu
Á hvítasunnudag er hátíðarmessa kl. 11. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar verður flutt. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Eftir messuna er hressing og samfélag á Torginu. Á mánudag, annan í hvítasunnu, kl. 18 er helgistund í garði og safnaðarheimili. [...]
Messa sunnudaginn 28. maí
Messa kl. 11 sunnudaginn 28. maí. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Blöð og litir eru á staðnum fyrir yngsta fólkið. Hressing og samfélag á Torginu eftir messu. Verið öll hjartanlega velkomin.
Vortónleikar Kórs Neskirkju
Kór Neskirkju lýkur vetrarstarfi sínu með tvennum vortónleikum. Þeir fyrri verða laugardaginn 21. maí kl. 16:00 í Skálholtskirkju. Þeir síðari þriðjudaginn 24. maí kl. 20:00 í Neskirkju. Á efnisskránni eru fjölbreytt verk eftir íslensk og erlend tónskáld. Þar má nefna verkin Lyng og Harpa kveður dyra úr smiðju Steingríms Þórhallssonar, [...]
Sunnudagurinn 22. maí
Messa kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir messu. Sýning Þrándar Þórarinssonar, Hóllavallagarður, stendur yfir á Torginu.
Sunnudagurinn 15. maí
Messa og barnastarf kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Ari Agnarsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Kristrún Guðmundsdóttir. Kaffi og samfélag á Torginu eftir messu. Minnum á sýningu Þrándar Þórarinssonar, Hólavallagarður, sem er á Torginu.
Hólavallagarður – Þrándur Þórarinsson
Sýning Þrándar Þórarinssonar sem opnuð verður í Neskirkju, beinir sjónum að Hólavallagarði, eða Gamla kirkjugarðinum eins og hann er oftar nefndur, ásamt með nánasta umhverfi garðsins, en með ákveðinni áherslu á það fólk sem grafið er í garðinum, kannski sérstaklega þær persónur sem hafa gert tilkall til framhaldslífs á hinn [...]
Messa 8. maí
Messa og barnastarf kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Fyrir messu eða kl. 10. er aðalfundur safnaðarins. Eftir messu verður sýning Þrándar Þórarinssonar, Hólavallagarður, opnuð á Torginu.
Aðalfundur Nessóknar
Aðalfundur Nessóknar verður haldinn sunnudaginn 8. maí n.k. kl. 10.00 í safnaðarheimilinu. Venjuleg aðafundarstörf. Allir velkomnir.
Vorhátíð Neskirkju 1. maí
Vorhátíð barnastarfsins í Neskirkju verður 1. maí og hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Bryndísar Láru Eggertsdóttur. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar og leiðir stundina með Kristrúnu Guðmundsdóttur. Undirleikur Ari Agnarsson, sem einnig leikur á harmonikku úti eftir eftir guðsþjónustu, þar sem verður hoppkastali, andlitsmálning, og [...]