Hin árlega prjónamessa verður sunnudaginn 10. júlí kl. 11. Allir velkomnir, með eða án handavinnu. Meðlimir í prjónahóp Neskirkju aðstoða við messuna. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng við undirleik Rósu Kristínar Baldursdóttur. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Heitt á könnunni og gott samfélag. Litir og blöð fyrir yngstu kynslóðina.