Sr. Magnús messar
Nýjabrum verður á messustílnum í Neskirkju sunnudaginn 29. október. Nýr prestur messar og nýr kór syngur! Organistinn er sá sami og söfnuðurinn væntanlega líka. […]
Bægslagangur
Nú hafa hvalveiðimenn tekið gleði sína á ný. Á sama tíma skiptast menn í tvö horn í afstöðunni til hvalveiða. Byssan var hreinsuð og fægð, hvalbáturinn gerður í stand og svo var haldið á miðin og fyrsti hvalurinn tekinn eins og í gangster í kúrekamynd: Upp með bægsli! Búmm! Og [...]
Undraveröld orgelsins
Steingrímur Þórhallsson, organisti Neskirkju stjórnar för í Opnu húsi miðvikudaginn 25. október. Kaffi kl. 15.00 í safnaðarheimilinu og dagská hefst kl. 15.30. Allir velkomnir.
Guðlast
Ármann Snævarr, fyrrum lagaprófessor, sagði glaður þegar hann fór úr Neskirkju: Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri lagagrein nefnda í prédikun! En þegar rætt er um guðlast koma lög við sögu, en líka gildi og þó helst trú. Guðlastsprédikunin er undir þessari smellu!
Úr búðarsloppi í rykkilín
Guð gleymir okkur aldrei, hann fær aldrei alzheimer eða elliglöp af neinu tagi. [...] En getur hann þá gleymt einhverju? Já, hann getur gleymt. Úr prédikun Arnar Bárðar í Ísafjarðarkirkju 22. okt. 2006 sem lesa má í heild með því að smella hér:
Messa og guðlast
Nýr prestur og guðlast í messunni 22. október! Sr. Magnús Erlingsson kemur til hálfs mánaðar þjónustu í Neskirkju og þjónar við altari næsta sunnudag. En guðspjall dagsins fjallar um guðlast. […]
NEDÓ fer á landsmót
Næstu helgi munu 17 börn úr æskulýðsstarfi Neskirkju og Dómkirkju fara á landsmót Æskulýðsfélaga í Vatnaskógi. […]
Vegurinn og lífið
Sturla Böðvarsson er samgönguráðherra og hefur vissulega umsjón með öðrum vegum en þeim sem Jesús talaði um. Hann kemur og ræðir um störf sín og lífið við eldri borgara í Opnu húsi í Neskirkju við Hagatorg, miðvikudaginn 18. október. […]
Prestar víxla embættum
Sóknarprestarnir Magnús Erlingsson á Ísafirði og Örn Bárður Jónsson í Neskirkju munu víxla embættum frá 19. -30. okt. Magnús mun sinna allri almennri prestsþjónustu þennan tíma og messa í Neskirkju sunnudaginn 29. okt. Sjá hér frétt af vef blaðsins Bæjarins besta á Ísafirði.
Rússarnir komu!
Já, Rússarnir komu og engin ógn stafaði af þeim. Þvert á móti lofuðu þeir Guð og sungu undursamlega fagra litrúrgíu frá 6. öld til heiðurs Maríu guðsmóður. […]