Pétur Pan og barnastarf Neskirkju.
Undir forystu Sigurvins Jónssonar æskulýðsfulltrúa í Neskirkju er Pétur Pan sérlegur verndari barnastarfsins á haustmisseri. Verið er að sýna ævintýrið á myndbandi í öllu barnastarfi fram að 12 ára aldri og rætt um innihald þess. […]
Alfa helgi Neskirkju í Skálholti.
Nú um helgina fór 25 manna hópur af Alfa I námskeiði í Neskirkju í Skálholt. Við vorum þar eins og blóm í eggi enda er hópum sinnt sérstaklega vel þarna. […]
Foreldrar sem fyrirmynd
Á næsta foreldramorgni, miðvikudaginn 8. nóvember, mun Ólöf Sigríður Indriðadóttir hjúkrunarfræðinemi tala um efnið Foreldrar sem fyrirmynd. Foreldramorgnar eru alla miðvikudaga kl. 10.00.
Kvennasögusafn Íslands
Auður Styrkársdóttir, forstöðumaður, mun segja frá Kvennasögusafni Íslands og fjársjóðum þess í Opnu húsi miðvikudaginn 8. nóvember. Kaffiveitingar kl. 15. Dagsskráin byrja kl. 15.30. Allir velkomnir. […]
Sæl og blessuð
Ásjóna Guðs birtist ekki síður meðal skuggaliðs samfélagsins. Við þurfum æfa okkur í langsýn og fjölsýn himnaríkis sem er önnur en veraldarinnar. Prédikun á allra heilagra messu er á tru.is
Allra heilagara messa
Fyrsti sunnudagur í nóvember er minningardagur þeirra sem látin eru og gengin inn í fagnað himinsins. Dagurinn er kallaður allra heilagra messa og í Neskirkju verður leitað að sælu í prédikuninni enda guðspjallið sæluboð Jesú í Fjallræðunni. […]
Að láta skrá sig
Skráning á kyrrðardag í Neskirkju er í síma 511-1560 eða með tölvupósti í neskirkja@neskirkja.is Gerið svo vel að skrá ykkur í síðasta lagi föstudaginn 3. nóvember. […]
Jóhannes í Bónus
Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus segir frá lífi sínu og starfi í Opnu húsi, miðvikudaginn 1. nóvember. Kaffiveitingar kl. 15. Dagsskráin byrja kl. 15.30. Allir velkomnir.
Kyrrðardagur í Neskirkju
Mig langar svo á kyrrðardaga, en ég hef ekki tíma til að ganga í svoleiðis klaustur í þrjá daga! Kannski langar þig líka að njóta kyrrðar. En nú er tækifæri í boði, Kyrrðardagur í Neskirkju laugardaginn 4. nóvember. Eitthvað fyrir þig? […]
Ótrúlega gott tilboð!
Næstum eins og samtal Boga og Örvars í Spaugstofunni eða eins og auglýsing um að Guðni ráðherra gefi mjólkina og vínið kosti ekkert í Vínbúðinni. Meira hér.