Mozart & Fauré í Neskirkju á sunnudagin
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Kór Neskirkju flytja hina undurfögru sálumessu Fauré í Neskirkju n.k. sunnudag 27. mars kl. 17:00. Auk þess verður fluttur konsert fyrir flautu og hljómsveit nr. 1 í G-dúr eftir W.A. Mozart. Einsöngvarar eru Hallveig Rúnarsdóttir og Hrólfur Sæmundsson sem bæði eru íslenskum tónleikagestum vel kunn. Einleikari á [...]
Þjóðkirkjan okkar– hvert stefnir?
Milliþinganefnd og framtíðarhópur kirkjuþings boða til málþings föstudaginn 25. mars milli 12 og 14 á Torginu í Neskirkju, undir yfirskriftinni Þjóðkirkjan okkar – hvert stefnir? […]
Listundur
Opið hús miðvikudaginn 23. mars. Ólöf Sigurðardóttir, frá Görðum við Ægissíðu, er safnstjóri í Hafnarborg í Hafnarfirði. Hún segir frá sýningum Þorra Hringssonar og Sigtryggs Baldvinssonar, sem ber „Varanlegt augnablik“. Kaffi í Neskirkju kl. 15 og síðan farið í rútu í Hafnarfjörð. Sjá dagskrá í Opnu húsi!
Messa 20. mars
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi á Torginu eftir messu.
Brot úr sögu Hallgrímskirkju
Opið hús kl. 15. Hallgrímssöfnuður varð til á sama tíma og Nessöfnuður. Sigurður Pálsson þjónaði Hallgrímskirkju og er nú að skrifa sögu kirkjunnar og segir frá fundum sínum. Opið hús er alla miðvikudag. Sjá dagskrá.
Suðrænn saltfiskur á föstudögum!
Hinir árlegu saltfiskdagar Neskirkju hefjast í hádeginu föstudaginn 11. mars. Þá verður boðið upp á suðrænan saltfisk. Séra Þorvaldur Víðissson flytur örhugvekju. Máltíðin kostar kr. 1500 og rennur hluti af andvirði hennar til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Tíminn og við
Opið hús miðvikudaginn 9. mars kl. 15. Bernharður Guðmundsson er prestur og hefur starfað á kirkjulegum vettvangi á Íslandi, í Eþíópíu, Sviss og víðar. Eftir að hann lét af störfum sem rektor Skálholtssskóla hefur hann m.a. stýrt norrænum vinnuhópi um málefni eldri borgara. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu. Dagskrá næstu miðvikudaga.
Hlauptu drengur – hlauptu
Opið hús miðvikudaginn 4. mars kl. 15.00. Ágúst Kvaran er hlaupagikkur og prófessor í eðlisefnafræði. Hann er kunnur fyrir maraþonhlaup og ofurmaraþon, sem eru jafnvel yfir eitt hundrað km. Til hvers að leggja stund á svona mannraunir? Hvað hugsa menn á hlaupum og hvers vegna að hlaupa? Kaffiveitingar á Torginu [...]
Klassík
Biblían er ekki google-græja fyrir þau, sem leita þekkingar um uppruna heimsins eða genamengi manna. En hún er leiðarvísir fyrir þau sem leita að nýju og betra lífi. Biblían er ekki lögbók eða sniðmát um leyfilegar hugsanir og lágmarks siðferði. Biblían er um Guð, líf, leið og hamingju. Biblían er [...]
Messa 27. febrúar
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi á Torginu eftir messu.