Messa sunnudaginn 6. október
Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Jóhanna Halldórsdóttir syngur einsöng. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Eva Björk, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Vatnið, lífið og listin
Krossgötur miðvikudaginn 2. október kl. 13.30. Guðrún Kristjánsdóttir segir frá verki sínu VATN sem nú stendur yfir í Hallgrímskirkju. Gerið svo vel að koma beint í Suðursal Hallgrímskirkju. Kaffi og kleina kosta kr. 500.
Messa 29. september
Messa og barnastarf kl. 11. Ceciliakórinn frá Flemingsbergs-söfnuðinum í Stokkhólmi heimsækir Nessöfnuð og tekur þátt í messunni. Með honum er íslenskur prestur, séra Baldur Baldursson. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Stúlknakór kirkjunnar syngur. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson organisti. Sr Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði [...]
Haustfasta í Neskirkju 7.-17. október
Viltu breyta mataræði og líðan? Efnt verður til haustföstu í Neskirkju 7. – 17. október. Fastan er ekki erfið en þó endurnýjandi. Matur á borðum föstufólks verður grænmeti, ávexti, heilkorn (glúteinlaust) og hnetur í þessa 10 daga sem fastan varir. Andlega fæðið svíkur ekki og fólk fær margvíslegan stuðning til að [...]
Mið-org viku-el dags-tónar – hádegið í Neskirkju
Hádegistónleikar miðvikudaginn 25. september kl. 12.00 - 12.30. Áfram verður haldið í gegnum stóru orgelverk Bach en nú er komið að c - mollinum. Þar kennir ýmissa grasa. Preludía og fúga í c moll BWV 549. Fantasia og fúga í c moll BWV 537. Preludía og fúga í c moll BWV 546 og hugsanlega [...]
Islam
Krossgötur, Opið hús kl. 13:30 miðvikudaginn 25. september. Sverrir Agnarsson, múslimi, vinnur við rannsóknir á fjölmiðlum. Hann kemur og fræðir okkur um spámanninn Múhameð og fleira sem tengist múslimum. Samræður um trú og líf í flóknum heimi ólíkra trúarbragða. Kaffiveitingar á Torginu. Skoða dagskrá Á krossgötum hér.
Mannsins vegna…
Frelsi eða helsi? Ef mikilvægustu lífsþættirnir eru í óreiðu berst vanlíðan til alls annars. Frumfæða mennskunnar – ástvinatengsl, hreyfing, vinnulíf og andans rækt - og líkamsfæðan er svo hin fæðuvíddin. Hana þarf að vanda jafnvel og frumfæðuna. Prédikun Sigurðar Árna frá 22. sept. 2013 er að baki báðum þessum smellum [...]
Breytum heiminum
Það hefur enginn beðið okkur um að leysa öll vandamál heimsins en það er hins vegar verkefni hvers manns að gera gott. Fermingarungmennin í Neskirkju fóru um hverfið í kvöld, gerðu gagn og bættu heiminn. Þau týndu ótrúlegt magn að rusli, pokarnir voru stórir! Þau köstuðu vinarkveðjum á öll sem [...]
Messa 22. september
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Krossgötur – Opið hús – miðvikudaginn 18. septembar
Haustferð að Fitjum í Skorradal. Hulda Guðmundsdóttir er skógar- og kirkjubóndi á Fitjum. Hún tekur á móti hópnum og segir frá stað, skógrækt og kirkjulífinu. Lagt verður af stað frá Neskirkju kl. 13.00. Athugið breytan tíma. Skráning í síma 511 1560. Kaffi á Fitjum kostar kr. 1300. Sjá haust dagskrá hér!