Frelsið í ófrelsinu
Krossgötur - Opið hús miðvikudaginn 23. október kl. 13.30. Hreinn Hákonarson er fangaprestur og mun ræða um starfs sitt. Hvernig er staðið að málum fanga í landinu? Hvernig er kirkjunni tekið í heimi hinna ófrjálsus? Samtal.
Málmhaus
Kirkjubruninn varð mér til íhugunar um hlutverk kirkju á Íslandi. Hera tók út reiði sína á Guði með því að brenna kirkjuna sem pabbi og mamma hennar sungu í, bróðir hennar var jarðsunginn frá og þar sem myndin af Kristi horfði á hana. Hugleiðing Sigurðar Árna í messunni 20. október [...]
Messa sunnudaginn 20. október
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Landhelgisgæslan í þjónustu Íslendinga
Krossgötur - Opið hús kl. 13.30 miðvikudaginn 16. október. Georg Lárusson er forstjóri gæslunnar og hann segir frá hlutverki hennar og í hverju starf hans er fólgið. Kaffiveitingar á Torginu.
Kvöldstund í kyrrð og kór
Miðvikudagskvöldið 16. október kl. 20.30 bjóða Kór Neskirkju og Stúlknakór Neskirkju öllum á tónleika þar sem íslensk dægurtónlist verður í aðalhlutverki. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana og eru allir hjartanlega velkomnir. Við flytum m.a. Vegbúann og I think of Angels eftir KK, Heyr mína bæn eftir Óla Gauk og Leiðina okkar [...]
Haustfasta í Reykjavík
Nú stendur yfir haustfasta Neskirkju. Haustfastan stendur yfir í ellefu daga og gengur út á að fasta á kjöt og fisk, sneiða hjá ofnæmisvökum og neyta hvorki kaffis né áfengis. Fullbókað varð á föstunámskeiðið á þremur dögum og var fljótlega ákveðið að efna til annars námskeiðs sem hefst 4. nóvember og jafnvel þess [...]
Ömmu og afa messa!
Ömmu og afa messa verður sunnudaginn 13. október kl. 11. Hljómur og Barnakór Neskirkju syngja. Stjórnandi Jóhanna Halldórsdóttir. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Ása Laufey Sæmundsdóttir umsjónmaður barnstarfs Neskirkju aðstoðar. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir messu á Torginu.
Mið-org viku-el dags-tónar – hádegið í Neskirkju
Hádegistónleikar miðvikudaginn 9. október kl. 12.00 – 12.30. Nú er komið að þriðju tónleikunum í þessari yfirferð á fimmta hefti orgelverka Bach, „Praeludien, Toccaten, Fantasien und Fugen I". Á tónleikum koma óvenjulega margar tóntegundir fyrir, c-moll, d-moll og D - dúr. Á dagskrá er Fantasía og Fúga í c BWV 562, bara [...]
Krossgötur miðvikudaginn 9. október
Krossgötur, Opið hús kl. 13.30. Sprikl og sprang. Hjónin Gauti Grétarsson, sjúkraþjálfari og Hildigunnur Hilmartsdóttir, íþróttakennari mæta og ræða um hreyfingu og hollustu, líkamlega og andlega líðan. Kaffiveitngar.
Er Guð að leika sér að veröldinni?
Við, menn, spyrjum um orsakir, en Jesús um ávöxt. Menn spyrja um tildrög, en Jesús um merkingu. Menn leita aftur, en Jesús beinir sjónum fram á veginn. Menn sjá lokuð kerfi orsaka og afleiðinga, en Jesús sýnir plúsana í lífinu. Menn rækta löghyggju, en Jesús bendir til frelsis. Menn loka [...]