Blómatónleikar
Kór Neskirkju heldur seinni vortónleika sína í Neskirkju miðvikudagskvöldið 4. júní, kl. 20:00. Enginn aðgangseyrir. Eftir tónleikana verður hin árlega sumarblómasala til styrktar kórnum. Blómin, eins og kórinn, koma sem fyrr úr umhyggjusamri ræktun kórstjórans. Á efnisskrá tónleikanna kennir margra grasa, angurvær íslensk vorlög og þjóðlög í bland við verk [...]
Í ofsa og ógn
Guð er líka á grensunni, neðst og meðal fanganna. Þetta var m.a. tjáð í prédikun Sigurðar Árna í Neskirkju á sjómannadeginum 1. júní. Prédikunina er hægt að nálgast bæði á postilluvef þjóðmirkjunnar tru.is og einnig á heimasíðu Sigurðar Árna sigurdurarni.is Við athöfnina sungu tveir barnakórar, annar frá Kaupmannahöfn og hinn var [...]
Guðsþjónusta 1. júní
Guðsþjónusta kl. 11. Fredriksberg pigekor í Kaupmannahöfn syngur, stjórnandi Lis Vorbek. Barnakór Neskirkju, stjórnandi Jóhanna Halldórsdóttir. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og samfélaga á Torginu eftir messu.
Uppstigning
Það er mikilvægt að snúa ekki bara aftur í lífinu, heldur njóta þess sem gerist í umhverfi okkar, upplifa hin sem eru á leiðinni, vera næm og glöð gagnvart litum og viðburðum daganna. Og við megum gjarnan opna gagnvart framtíð og möguleikum hennar. Prédikun Sigurðar Árna í Neskirkju á uppstigningardegi [...]
Fermingar í Neskirkju 2015
Skráning í námskeið og á fermingardag hefst þriðjudaginn 3. júní. Hægt er að hringja í síma 511-1560 eða koma við í Neskirkju við Hagatorg á skrifstofutíma milli klukkan 10 og 15. Fermingarnámskeið hefst sunnudagskvöldið 17. ágúst 2014 kl. 20.00 og verður kennt frá mánudegi 18. ágúst til fimmtudagsins 21. ágúst frá [...]
Guðsþjónustan á uppstigningardegi kl. 14
Uppstigningardagur er dagur eldri borgara í þjóðkirkjunni. Í guðsþjónustunni í Neskirkju kl. 14 syngur Hljómur undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur. Steingrímur Þórhallsson leikur á orgelið og Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Eftir athöfn í kirkjunni verður veislukaffi á Torginu. Gleðin heldur áfram því Reynir Jónasson mun þenja harmonikku [...]
Safnaðarferð Neskirkju í Vatnaskóg og að Saurbæ
Langar þig út í vorið í góðum félagsskap? Hallgrímur Pétursson á 400 ára afmæli. Miðvikudaginn 28. maí býður Neskirkja öllum sem vilja í safnaðarferð í Hvalfjörð. Farið verður frá Neskirkju kl. 13,30 og ekið að sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi. Þaðan verður farið að Saurbæ og gengið í Hallgrímskirkju. Kristinn Jens [...]
Messa á bænadegi 25. maí
Bænadagsmessan og barnastarf hefjast kl. 11 þann 25. maí. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Judith Þorbergsson. Strengjasveit úr Tónskóla Sigursveins leikur í athöfninni. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélag og kaffisopi á Torginu.
Fermingar 2015
Fréttatilkynning vegna ferminga 2015, námskeiðið í ágúst, skráningu og fermingardaga o.fl. er að finna að baki þessari smellu: Fermingar 2015
Um hið illa í tilverunni
Krossgötur miðvikudaginn 21. maí kl. 13.30. Davíð Þór Jónsson guðfræðingur hefur skrifað ritgerð um Satan og hið illa. Hann mun ræða hin myrku svið lífsins. Kaffiveitingar.