Samtal um sýninguna GERÐ
Sunnudaginn 11. maí í kjölfar messunnar, kl. 12.00, ræðum við sýningu Þórdísar Jóhannesdóttur, Gerð. Listamaðurinn fjallar um verkin og sr. Skúli S. Ólafsson leiðir samtalið. Hér má lesa lýsingu Aldísar Arnardóttur á sýningunni: Gerð Allt á sér stað innan kerfis og í samhengi við eitthvað annað. Í gegnum trúarbragðasöguna hafa mælieiningar [...]
Messa 4. maí
Messa og barnastarf kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, fyrrum Neskirkjuprestur, messar kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur sem er við hljóðfærið. Barnastarfið er á sínum stað með sögum og söng. Kaffiveitingar á Torginu að messu lokinni.
Sigurð Breiðfjörð
Krossgötur mánudaginn 28. apríl kl. 13.00. Nýverið kom út bók eftir Óttar Guðmundsson lækni um Sigurð Breiðfjörð rímnaskáld og samskipti hans við helstu samtímamenn sína þar á meðal Jónas Hallgrímsson og aðra Fjölnismenn. Óttar og eiginkona hans Jóhanna Þórhallsdóttir, söngkona koma á Krossgötur og flytja þar dagskrá um ævi og [...]
Guðsþónjusta 27. apríl
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn. María Kristín Jónsdóttir er við hljóðfærið. Barnastarfið er á sínum stað með söng og leik. Kaffi á Torginu að guðsþjónustu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Skírdagur
Messa og máltíð í kirkjunni með dúkuðu borði kl. 18.00. Þau sem geta eru hvött til að leggja eitthvað til máltíðarinnar. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Föstudagurinn langi
Helgistund kl. 11.00. Píslarsagan lesin og hugleidd. Silja Björk Huldudóttir og Tinna Sigurðardóttir syngja einsöng. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Páskadagur
Hátíðarmessa kl. 8.00. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar orgaista. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið. Prestar kirkjunnar þjóna. Morgunkaffi og páskahlátur að messu lokinni. Báðir prestar kirkjunnar þjóna. Sr. Skúli S. Ólafsson predikar. Fjölskylduguðsþjónusta og páskaeggjaleit kl. 11:00. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir leiðir stundina.
Hver dagur er hátíð
Krossgötur 14. apríl kl. 13.00. „Hver dagur er hátíð“ Guðrún Ágústsdóttir fjallar um afa sinn séra Bjarna Jónsson Dómkirkjuprest og áhrifamann á sviði kirkju og trúarlífs. Yfirskriftina sækir Guðrún í orð ömmu sinnar, Áslaugar Ágústsdóttur en svona lýsti hún sambúð þeirra. Hjónaband þeirra kemur mjög við sögu í erindi hennar. [...]
Pálmasunnudagur, 13. apríl. Hátíðarmessa
Hátíðarmessa kl. 11:00 á kirkjudegi Neskirkju. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Silja Björk Huldudóttir og Tinna Sigurðardóttir syngja einsöng. Sr. Skúli S. Ólafsson þjónar fyrir altari og Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir predikar. Barnastarf á sam tíma í safnaðarheimilinu. Samfélag og kaffisopi á Torginu. Messunni er útvarpað. Biblíulestur í [...]
Skólakerfi í deiglu: Sigríður Ólafsdóttir, dósent
Krossgötur mánudaginn 7. apríl kl. 13.00. Hvað þýðir það að 40% nemenda sem útskrifuðust úr grunnskólum á Íslandi árið 2022 hafi ekki náð lágmarksfærni í lesskilningi á PISA? Hvað er það sem veldur því að nemendur sýna svo slakan lesskilning eftir 10 ára grunnskólagöngu? Hvað getum við lesið úr þeim niðurstöðum, hverjar [...]