Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Umræður um hreinsunaraðferðir

Umræður um hreinsunaraðferðir er yfirskriftin á samtali um sýningu Arnars Ásgeirssonar í Neskirkju sem fram fer föstudaginn langa, 7. apríl í kjölfar helgistundar sem hefst kl. 11.00.  Arnar birtir okkur karlmannsskrokka, vörpulega í viðurkenndum hlutföllum. Allt frá fornöld hefur þetta þótt vera hið fullkomna form mannslíkamans. Við ættum að kannast [...]

By |3. apríl 2023 09:53|

Fjölskyldumorgnar á þriðjudögum

Fjölskyldumorgnar hefjast aftur á þriðjudögum þann 4. apríl. Þetta eru samverur sem henta fólki sem er heima með börn og langar að koma og hitta fleiri í sömu stöðu. Kaffi og te á boðstólnum, dýnur og leikföng fyrir börnin. Góð aðstaða til að hafa kerrur og vagna fyrir utan salinn, [...]

By |3. apríl 2023 08:13|

Afmæslisdagur kirkjunnar

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sr. Skúli S. Ólafsson predikar og sr. Steinunn A. Björnsdóttir þjónar fyrir alltari. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og hressing eftir messu [...]

By |30. mars 2023 09:41|

Helgihald á pálmasunnudag

Messa og barnastarf kl. 11.00 á pálmasunnudag, vígsluafmæli kirkjunnar. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti og stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Sr. Steinunn A. Björnsdóttir þjónar fyrir altari en  sr. Skúli S. Ólafsson predikar. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag [...]

By |29. mars 2023 14:08|

Langafasta

Krossgötur þriðjudaginn 28. mars kl. 13.00. Sr Skúli S. Ólafsson fjallar um lönguföstuna. Hverjar eru forsendurnar að baki því að fólk fastaði vikurnar fyrir páska? Hvaða hefðir mótuðust á þeim tíma?

By |27. mars 2023 10:58|

Syngið Drottni nýjan söng – ný kórverk frumflutt

Kór Neskirkju verður með tónleika þriðjudaginn 28. mars kl. 20.00 í Landakotskirkju. Á tónleikunum verða meðal annars frumflutt þrjú kórverk, Filius es sine fine Dei eftir Báru Grímsdóttur, Ave Maria eftir Gunnar Andreas Kristinsson og Miserere eftir Steingrím Þórhallsson. Ásamt Kór Neskirkju mun Pamela De Sensi spila með á þverflauta. Stjórnandi er [...]

By |24. mars 2023 09:42|

Messa 26. mars

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti og stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.

By |24. mars 2023 09:37|

Þórarinn Eldjárn

Þórarinn Eldjárn rithöfundur verður gestur á Skammdegisbirtu í Neskirkju sunnudaginn 26. nars nk. Kl 18 – 20. Ragnhildur Þórhallsdóttir og Þorgeir Tryggvason syngja texta eftir Þórarin og Steingrímur Þórhallsson organisti flytur eigin lög fyrir píanó. Skáldið segir frá nýjustu bók sinni Tættir þættir og ef til vill fleiri bókum. Skammdegisbirta [...]

By |20. mars 2023 11:12|

Trúarleg ljóð

Krossgötur 21. mars kl. 13.00. Guðbjörn Sigurmundsson, kennari og þýðandi ræðir fornan trúarkveðskap, túlkar textana og ræðir samhengi þeirra við þá tíma sem þeir voru ortir. Kaffiveitingar.

By |20. mars 2023 09:00|

Helgihald 19. mars

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í kirkjunni. Í messunni syngja félagar úr kór Neskirkju undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Textar dagsins fjalla um manna og möglandi fólk - og hið lifandi brauð. Í sunnudagaskóla leiðir Nanna Birgisdóttir Hafberg leiki, sögur og söng [...]

By |16. mars 2023 08:32|