Fréttir

Eldsókn

Ása missti hönd en Signý nef. Helga fékk bæði eld og prins í sinni eldgöngu. Sr. Sigurður Árni Þórðarson fléttaði þjóðsögu um systur í “þjóðsöngsvisku” í hugleiðingu á fyrsta degi ársins 2008, sjá hér.

By |2008-01-01T21:40:26+00:001. janúar 2008 21:40|

Áramótin í Neskirkju

31. desember - GamlársdagurAftansöngur kl. 18.00Trompetleikur Hringur Gretarsson. Einleikur á flautu Pamela De Sensi. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sungið verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Prédikun dagsins er hægt að nálgast hér.1. janúar - NýársdagurHátíðarmessa kl. 14.00Kór Neskirkju syngur. Einsöngur Einar Clausen. Organisti Steingrímur Þórhallsson. [...]

By |2007-12-28T08:36:18+00:0028. desember 2007 08:36|

Lífið er draumur

Jósef var tengdur sínum innri manni. Hann þorði að hlusta á drauma sína og breyta um skoðun. Að hlusta á drauma er okkur nauðsyn og veröldinni lífsnauðsyn. Hugleiðing sr. Sigurðar Árna Þórðarsonar 24. desember er hægt að nálgast hér.

By |2007-12-24T00:00:00+00:0024. desember 2007 00:00|

Ljósamessa kl. 11

Hin árlega Ljósamessa sem fermingarbörn annast að hluta til verður sunnudaginn 16. des. kl. 11. Fermingarbörn lesa spádóma um komu Krists og tendra ljós um alla kirkju og breiða ljósfaðm um fjölskyldu og söfnuð. Fátt er betra til undirbúnings jóla en Ljósamessa á aðventu! Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar. Kertasala Hjálparstarfs kirkjunnar eftir messu.Súpa og [...]

By |2007-12-15T11:53:58+00:0015. desember 2007 11:53|

Aftenging skóla og jóla?

Pistill eftir sr. Örn Bárð sem birtist í Vesturbæjarblaðinu 14. des. 2007 er á vefnum og mikið lesinn. Hann fjallar um kristinn trúararf og verðveislu hans. Þú finnur pistilinn hér.

By |2007-12-15T00:15:13+00:0015. desember 2007 00:15|

Opið hús

Í stað þess að koma saman í Neskirkju eins og venja er á miðvikudögum hittast gestir Opins húss í kaffistofu Þjóðminjasafnsins kl. 15 n.k. miðvikudag, 12. desember, og hlýða síðan á Pétur Pétursson prófessor fjalla um Völuspá og býsanskar dómsdagsmyndir og mikilvægi þeirra fyrir kristniboð um árið 1000. Um þær mundir er talið að Völuspá [...]

By |2007-12-10T21:43:28+00:0010. desember 2007 21:43|

Myndir á aðventu

Á undan jólaboðskap hljóma orð um raunveruleika heimsins, en svo líka um hvað verður til lausnar. Engin billeg svör eru í alþjóðamálum, lífið er flókið og stundum sorglegt. En á vonartíð aðventunnar eru okkur tjáð að þvert á vonsku vill Guð hið góða. Prédikun sr. Sigurðar Árna 9. desember er á bak við þessa smellu.

By |2007-12-09T21:39:21+00:009. desember 2007 21:39|

Tvö kerti á kransi

Á öðrum sunnudegi í aðventu kveikja börnin á tveimur kertum á aðventukransinum. Messuhópur þjónar í athöfninni sem hefst kl. 11. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Félagar úr Kór Neskirkju stýra söng. Kór Orkuveitunnar syngur í athöfninni. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Matarhópur sér um hádegisverð eftir messu. […]

By |2007-12-08T13:12:55+00:008. desember 2007 13:12|