Fréttir

Þorðu að efast

Þolir trú nokkuð efa? Er það ekki markmið trúmannsins að útrýma efanum? Eða eigum við kannski að efast um slíkan efa? Prédikun sr. Sigurðar Árna 30. mars var um Tómas, Kant og efann í trúnni. Smelltu hér til að nálgast prédikunina.

By |2008-03-31T22:18:57+00:0031. mars 2008 22:18|

Efastu um efann?

„Þorðu að hugsa“ skrifaði heimspekingurinn Immanuel Kant í frægri ritgerð. Tómas postuli hugsaði sitt og efaðist. Hann mætti Jesú og þorði að endurskoða allar sínar hugmyndir. Á fyrsta sunnudegi eftir páska verður í messunni hugað að trú, efa og tengslum þeirra í samtíð okkar. Athöfnin hefst kl. 11 og barnastarfið hefst í kirkjunni. Allir velkomnir, [...]

By |2008-03-28T20:54:46+00:0028. mars 2008 20:54|

Nú byrjar allt!

Á krossinum sagði hinn þjáði: Það er fullkomnað! En í reynd var hann segja: Nú byrjar allt! Úr prédikun sr. Arnar Bárðar á páskadag sem lesa má í heild og hlusta á hér:

By |2008-03-23T18:58:50+00:0023. mars 2008 18:58|

Föstudagsfólk eða sunnudagsfólk

Stuð eða tilfinningarlegur mínus gerir ekki útslagið í lífinu, ekki jákvæðni eða neikvæðni. Ertu í hópi föstudagsfólks eða sunnudagsfólks? Hver er frumforsendan? Páskaprédikun sr. Sigurðar Árna er undir þessari smellu.

By |2008-03-23T14:36:23+00:0023. mars 2008 14:36|

Páskagleði og hlátur!

Páskadagur, tvær messur, kl. 8 og 11. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið í fyrrihluta beggja athafna. Sr. Örn Bárður prédikar í þeirri fyrri og sr. Sigurður Árni í þeirri síðar en þeir þjóna saman við báðar messurnar. Kaffi og ilmandi brauð á milli messa, páskahlátur og svo verður Steingrímur með tónleika. Tillögur að páskadagsmorgni í [...]

By |2008-03-21T18:26:11+00:0021. mars 2008 18:26|

Helgihald um bænadaga og páska

Skírdagskvöld, messa kl. 20. Félagar í Háskólakórnum syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Minnst verður síðustu kvöldmáltíðar Krists. Sérbakað brauð og óáfengur vínberjasafi í altarisgöngunni.Föstudaginn langa. Guðsþjónusta kl. 11. Þjáning Jesú og písl náttúrunnar. Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Ari Trausti Guðmundsson og Matthías Johannessen lesa eigin [...]

By |2008-03-19T11:58:39+00:0019. mars 2008 11:58|

Skírdagskvöld

Messan á skírdagskvöldi, fimmtudaginn 20. mars, verður kl. 20. Félagar í Háskólakórnum syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. […]

By |2008-03-18T10:33:15+00:0018. mars 2008 10:33|

Opið hús

Opið húsi miðvikudaginn 19. mars kl. 15. Sr. Örn Bárður Jónsson talar um annað rit læknisins Lúkasar í Nýja testamentinu, Postulasöguna. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi. Sjá dagskrá í Opnu húsi hér.

By |2008-03-18T10:15:28+00:0018. mars 2008 10:15|

Barnastarf á páskadagsmorgun

Á páskadagsmorgun verður sunnudagaskóli kl. 11 sem hefst inni í hátíðarmessunni líkt og venja er. Að sunnudagaskóla loknum verður páskeggjaleit á túninu fyrir utan kirkjuna. Um barnastarfið sjá Sigurvin Jónsson guðfræðingur, Björg Jónsdóttir læknanemi, Andrea Ösp Andradóttir menntskælingur og Alexandra Diljá Arnarsdóttir grunnskólanemi.

By |2008-03-18T00:00:00+00:0018. mars 2008 00:00|