Fréttir

Núllstillt í kreppunni og nýr tími

Kairos, upphaf, ný öld. Liðin vika er tími fæðingarhríða. Nýr tími er að koma í heiminn. Við þurfum að staldra við og hugsa um hamingjuna, siðvit okkar og um gleðina, um hláturinn, um ástina. Prédikun sr. Sigurðar Árna 12. október er undir þessari smellu.

By |2008-10-13T09:58:45+00:0013. október 2008 09:58|

Messað til lífs

Barnastarfið og messan byrja kl. 11. Sunnudaginn 12. október mun sr. Helgi Hróbjartsson þjóna fyrir altari með sr. Sigurði Árna, sem prédikar. Helgi mun eftir messu segja frá starfi í Waddera í Eþíópu, sem Nessöfnuður hefur styrkt myndarlega undanfarin ár. Félagar úr kór Neskirkju syngja, Steingrímur leikur á orgelið og Úrsúla mehjálpari. Messuhópur þjónar. Sigurvin, [...]

By |2008-10-10T15:41:05+00:0010. október 2008 15:41|

Foreldramorgnar

Á foreldramorgni fimmtudaginn 9. október verður kynning á viðburðum Brjóstagjafavikunnar. Soffía Bæringsdóttir kennari kynnir. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10 til 12.

By |2008-10-09T09:36:19+00:009. október 2008 09:36|

Myndlist á messutíma

Síðastliðinn sunnudaginn 28. september var opnuð sýning á verkum Steinunnar Þórarinsdóttur myndhöggvara í safnaðarheimili Neskirkju og á lóð kirkjunnar. […]

By |2008-10-07T12:57:13+00:007. október 2008 12:57|

Háski, gáski og köllun manns

Málm- og gips-verk Steinunnar Þórarinsdóttur spyrja um líf. Textar Biblíunnar spyrja um tilgang. Til hvers erum við kölluð, gáska eða háska. Prédikun sr. Sigurðar Árna 28. september 2008, á opnunardegi Steinunnarsýningar er hér á bak við þessa smellu.

By |2008-09-28T13:20:31+00:0028. september 2008 13:20|

Messa og opnun Steinunnarsýningar 28. september

Alla helga daga ársins og miðvikudaga að auki er messað í Neskirkju. Sunnudaginn 28. september munu félagar úr Háskólakórnum syngja í messunni sem hefst kl. 11. Organisti verður Steingrímur Þórhallsson, prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Börnin hefja helgihald í kirkjunni en fara síðan til sinna starfa. Eftir messu mun dr. Pétur Pétursson opna sýningu Steinunnar [...]

By |2008-09-25T21:10:48+00:0025. september 2008 21:10|

Fermingarfræðslan í Neskirkju

Fundur með foreldrum/aðstandendum fermingarbarna verður fimmtudagskvöldið 25. september kl. 18-19 í safnaðarheimili Neskirkju. Fermingarbörnin mæta ekki á þennan fund!Fermingarbörnin mæta hins vegar á fræðslukvöld, sama dag, sem byrjar kl. 19.30 og stendur til kl. 21. Skyldumæting er á fræðslukvöldin og verður næsta haldið 30. október en þá mæta foreldrar og börn saman.

By |2008-09-23T22:03:23+00:0023. september 2008 22:03|

Málmur, gifs, fólk og Andinn

Myndlistarsýning Steinunnar Þórarinsdóttur í og við Neskirkju verður opnuð sunnudaginn 28. september. Steinunn er einn merkasti skúlptúristi Íslendinga. Hún hefur gert margar stórkostlegar myndir og hróður hennar hefur borist víða. Sýningin er sett upp á vegum Neskirkju. […]

By |2008-09-23T21:26:04+00:0023. september 2008 21:26|

Foreldramorgnar

Foreldramorgun fimmtudaginn 25. september kl. 10. Hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslunni á Seltjarnarnesi verður með fræðslu. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga milli kl. 10 og 12.

By |2008-09-23T10:27:13+00:0023. september 2008 10:27|