Fréttir

Messa 19. september kl. 11 – -Hver er hrunkóngur allra tíma? Um þjáninguna og ólánin í lífinu. Um vonina og trúna.

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Lísbet, Andrea og Ari. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.

By |2010-09-16T12:14:39+00:0016. september 2010 12:14|

Bænasteinar í sunnudagaskólanum.

Næsta sunnudag ætlum við að mála bænasteina í sunnudagaskólanum en steinarnir verða notaðir í sunnudagaskólanum í vetur. Við byrjum uppi í messunni líkt og venja en förum síðan niður í kjallara þar sem við ætlum að halda sunnudagaskóla og mála saman. Málningin sem við notum á að nást úr í þvotti en betra er að [...]

By |2010-09-16T11:19:00+00:0016. september 2010 11:19|

Uppeldisnámskeið hefst á morgun miðvikudag.

Enn er pláss fyrir tvenna foreldra á fyrra uppeldisnámskeið haustsins en stefnt er að því að halda tvö slík námskeið. Helga Arnfríður sálfræðingur kennir á námskeiðunum sem ber heitið Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar en Helga hefur áralanga reynslu af kennslu slíkra námskeiða. Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu.

By |2010-09-14T10:43:14+00:0014. september 2010 10:43|

Merkjavörur og strikamerki mennskunnar

Merkjavörur eru merkilegar en eiga ekki að skilgreina gildi okkar og eðli. Við erum Guðs börn en ekki merkjabörn. Jesús Kristur hafði margt að segja um strikamerki mennskunnar. Prédikun Sigurðar Árna 12. september 2010 er að baki þessari smellu.

By |2010-09-13T11:37:37+00:0013. september 2010 11:37|

Fjöruferð í Sunnudagaskólanum

Sunnudagaskóli Neskirkju er kominn í fullan gang og í dag byrjum við í messu safnaðarins kl. 11 líkt og venja er. Börn og foreldrar ganga síðan í safnaðarheimili kirkjunnar þar sem sögð verður saga, sungið og fylgst með Rebba ref og Engilráð. Þeir sem vilja ganga síðan áleiðis á Ægisíðu þar sem við ætlum að [...]

By |2010-09-12T09:36:35+00:0012. september 2010 09:36|

Sunnudagsmessa og sýndarlíf

Kirkjan er fyrir þig og sunnudagsmessan er öllum opin. Messan 12. september hefst kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju og organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari og talar um ásýnd, sýndarsókn og Fjallræðu Jesú. Messuhópur þjónar, kaffi og samtal á Torginu eftir messu.

By |2010-09-09T11:55:00+00:009. september 2010 11:55|

Uppeldisnámskeið í Neskirkju – Uppeldi sem virkar

Miðvikudaginn 15. september hefst í Neskirkju uppeldisnámskeið sem að Helga Arnfríður sálfræðingur kemur til með að kenna. Námskeiðið ber heitið Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar en Helga hefur áralanga reynslu af kennslu slíkra námskeiða. Námskeiðið miðar að því að auka færni uppalenda og stuðla að nánari tengslum milli barna og foreldra en námskeiðið [...]

By |2010-09-08T10:43:17+00:008. september 2010 10:43|

Messa 5. sept. kl. 11 – Álagahamur og örlög, vantraust á tignarmenn, úrsagnir og samstaða

Messa og barnastarf kl. 11. Upphaf sunnudagaskólans. Börnin verða með í upphafi messunnar. Félagar úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar: Droplaug Guðnadóttir, Svanur Kristjánsson, Auður Styrkársdóttir og Kári Svansson. Meðhjálpari Rúnar Reynisson. Umsjón með barnastarfinu hafa þau Sigurvin, Lísbet, Andrea og Ari. Samfélag og kaffisopi eftir [...]

By |2010-09-05T07:47:52+00:005. september 2010 07:47|

Stúlknakór og Barnakór

Stúlknakór Neskirkju er fyrir 9 - 12 ára stelpur. Æfingar verða á miðvikudögum klukkan 14:30 - 15:30 og er fyrsta æfing 8. september. Barnakórinn er ætlaður börnum í 7 - 9 ára bekk. Æfingar verða á fimmtudögum kl. 14:00-14:45 og er fyrsta æfingin 9. september. Stjórnandi er Steingrímur Þórhallsson. Upplýsingar fást í síma 511-1560, hjá steini@neskirkja.is og [...]

By |2010-08-29T10:44:50+00:0029. ágúst 2010 10:44|

Kór Neskirkju – raddpróf

Kór Neskirkju getur bætt við sig nokkrum áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem vilja taka þátt í fjölbreyttu kórastarfi. Sækjumst sérstaklega eftir nokkrum bössum og sóprönum sem hafa einhverja söngreynslu eða mikinn metnað. Við hverjum þó alla áhugasama til þess að hafa samband. Kunnátta í nótnalestri er æskileg en þó ekki skilyrði fyrir gott fólk. Raddpróf [...]

By |2010-08-28T10:46:26+00:0028. ágúst 2010 10:46|