Barnakór Neskirkju
Barnakór Neskirkju er fyrir börn í 2.-4. bekk. Kórstjóri er Hilmar Örn Agnarsson.
Barnakór Neskirkju er fyrir börn í 2.-4. bekk. Kórstjóri er Hilmar Örn Agnarsson.
Jesús Kristur er ekki ríkidæmisdraumur hins fátæka, ekki hitastillir hins brennda eða kalda, ekki dyravörður mustera munúðarinnar og ekki netþjónn sálarvers handanverunnar. Hann er sjálfur lífið, sjálfur leiðin. Þar er krafan um guðdóm og ávarpið til þín um trú. Prédikun Sigurðar Árna 9. október, 2011 er að baki þessari smellu.
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkja leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
Föstudaginn 7. október verður eldaður Biblíumatur í hádeginu í Neskirkju. Kynning verður á rétti dagsins, sem er fíkjukryddað lambakjöt, matarhefðum og matarmerkingu Biblíunnar kl. 12 og síðan verður matur borinn fram. Máltíðin kostar 1.500 kr. Allir velkomnir.
Skiptir fjöldi kirkjugesta máli máli þegar kemur að gildi boðunarinnar? Hvað merkja úrsagnir fólks úr þjóðkirkjunni? Á biskupinn að vera trúarleiðtogi eða stjórnandi fyrst og fremst? Hvort skiptir kirkjustofnunin eða starfið í söfnuðunum meira máli? Birna Guðrún Konráðsdóttir ræðir þessar og fleiri spurningar í erindi sínu um kirkju og þjóð í samtíð og framtíð föstudaginn [...]
Að fjölskylduböndin séu kærleiksbönd. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir starfaði sem kennari og meðferðarfulltrúi áður en hún vígðist til þjónustu í Þjóðkirkjunni. Nú starfar hún sem Dómkirkjuprestur þar sem margir leita til hennar þegar kreppir að í fjölskyldum. Opið hús er alla miðvikudaga og hefst kl. 15. með kaffiveitingum á Torginu. Sjá dagskrá.
Sr. Bolli Pétur Bollason prestur í Laufási í Eyjafirði er þessa helgi staddur í Reykjavík með hóp 20 æskulýðskrakka úr sókninni að njóta borgarinnar og fræðast. Í morgun var komið við í Neskirkju þar sem Guðjón Andri og Þorsteinn Breytönd fræddu krakkana um umhverfismál, mannréttindi og annað sem brennur á Breytendum, æskulýðshóp Hjálparstarfs kirkjunnar. Fleiri [...]
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Prédikunina er hægt að lesa og hlusta á hér.
„Hlutverk kirkjunnar í samfélagsþróuninni“ er yfirskrift erindis sem Sigríður Gudmarsdóttir flytur á Torginu á föstudaginn. Í örerindi sínu gengur Sigríður út frá því að Þjóðkirkjan hafi sem stofnun og fjöldahreyfing hlutverki að gegna í samfélagsþróuninni. Hún setur fram þrjár tilgátur um það hvað þurfi að gerast til þess að svo megi verða og lítur hin [...]
Opið hús kl. 15 miðvikudaginn 28. september. Efnahagsmál ber jafnan hátt íumræðum um þjóðmál á Íslandi. Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og kennari við HR, ræðir um hvaða lærdóma er hægt að draga af hruni og úrvinnslu þess. Eins veltir hann fyrir sér gildum í íslensku þjóðlífi og frávik sem varða hrunið. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi. [...]