Opið hús miðvikudaginn 21. nóvember
Opið hús kl. 15. Vigfús Bjarni Bjarnason, sjúkrahúsprestur fjallar um trúarþelið og sögu vestur-íslenskrar konu. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Opið hús kl. 15. Vigfús Bjarni Bjarnason, sjúkrahúsprestur fjallar um trúarþelið og sögu vestur-íslenskrar konu. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
„Þetta er spurning um skipulag,“ voru prédikunarviðbrögð þrautreynds forstjóra í messulok. Trúin er ekki utan við lífið heldur varðar allt líf manna, líka skugga, illsku og afbrot. Jesúsagan er líka um okkur. Hvernig er skipulagið? Prédikun á næstsíðasta degi kirkjuársins, 18. nóvember 2012, er að baki þessari smellu.
Messa og barnastarf kl. 11. Sameinlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Í opnu húsi miðvikudaginn 14. nóvember kemur Hljómur, kór eldri borgara og Barnakór Neskirkju kom í heimsókn og syngja nokkur lög. Stjórnandi er Jóhanna Halldórsdóttir. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Framan við kórinn var búið að saga stóran hring í gólfið og koma þar fyrir stórri laug með rennandi vatni. Það var hægt að fara í stóran pott - í kirkju. Á Marteinsmessu var í prédikun íhuguð skírnarskipun Jesú, skírn barna á siðbótartíma og í nútima. Prédikunin 11. nóvember er að baki smellunni.
Kæri Guð sem sérð fólk, skilur og elskar – og tekur þér stöðu með þeim sem líða vegna eineltis. Styrk þau sem eru niðurlægð, vanvirt, hædd, hjálparlaus, misskilin og yfirgefin. Hjálpaðu þeim að treysta þér sem nærfærnum vini sem verndar. Gef okkur augu til að sjá, vitund sem nemur og huga sem skilur. Hjálpa okkur [...]
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Hljómur - kór eldri borgara í Neskirkju syngur undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Opið hús kl. 15.00. Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða kemur í heimsókn og ræðir um samband kynslóðanna. Kaffiveitingar í upphafi.
Einelti er alvarlegt og aðkallandi vandamál meðal íslenskra ungmenna en einelti meðal barna og unglinga er afleiðing af þeirri valda- og ofbeldismenningu sem við búum við í samfélagi fullorðinna. Einelti er ekki síður stórt vandamál á vinnustöðum og í félagasamtökum fullorðinna og þar er vandinn mikið til falinn. Prédikun Sigurvins L. Jónssonar sunnudaginn 4. nóvember [...]
Messa sunnudaginn 4. nóvember kl. 11 í Neskirkju. Þema messunnar er einelti og afleiðingar þess. Stúlknakór Neskirkju leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Sr. Sigurður Árni Þórðarsson þjónar fyrir altari og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar. Stöndum saman, með lífinu og gegn einelti.