Ljósmóðirin
Opið hús miðvikudaginn 20. febrúar. Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur og rithöfundur segir frá Þórdísi Símonardóttur sem var ljósmóðir á Eyrarbakka um aldamótin 1900. Opna húsið hefst kl. 15 með kaffiveitingum á Torginu.
Opið hús miðvikudaginn 20. febrúar. Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur og rithöfundur segir frá Þórdísi Símonardóttur sem var ljósmóðir á Eyrarbakka um aldamótin 1900. Opna húsið hefst kl. 15 með kaffiveitingum á Torginu.
Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Andrea og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
Í Opnu húsi miðvikudaginn 13. febrúar mun dr. Sigmundur Guðbjarnason, fyrrum prófessor í efnafræði og fv. Háskólarektor ræðir lífsferil sinn; segir frá námsárum í München, rannsóknarstörfum í Bandaríkjunum, uppbyggingu kennslu við H.Í., árunum í rektorsembætti og rannsóknum á heilsujurtum. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu.
Vissulega er hægt að minnka mat og drykk. Við hefðum flest gott af! Og sumir leggja það á sig sem erfitt er - opna ekki netið, tölvupóstinn eða facebook og halda sér frá netinu í heilan sólarhring! Ferð föstunnar er hafin og það er dramatísk ferð. Prédikun Sigurðar Árna á sunnudegi í föstuinngangi er bæði [...]
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Meðhjálpari Rúnar Reynisson og messuþjónn Sesselja Thorberg Sigurðardóttir. Dr. Sigurður Árni prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
Opið hús miðvikudaginn 6. febrúar kl. 15. Dr. Erlendur Haraldsson, fyrrum prófessor í sálfræði, mun tala um lífsgildi, lífsgildakönnun og handanveruna. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Opin hús er alla miðvikudögum fram á vor og hefjast með kaffi og með því kl. 15 og svo er gengið til fræðandi og einlægrar dagskrár kl. 15, 30. Miðvikudaginn 30. janúar er dagskráin í höndum sr. Arnar Bárðar Jónssonar. Allir velkomnir.
Þegar forstjórinn var hnepptur í varðhald gaf hann út yfirlýsingu um að Auðlindaráðið hegðaði sér reiður guð. Í yfirlýsingu forstjórans var vitnað í Matthesuarguðspjall: „Takið af honum talentuna og fáið þeim sem hefur tíu talenturnar...Rekið þennan ónýta þjón út í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.“ Þetta er úr prédikun í sunnudagsmessunni 27. [...]
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt með sr. Toshiki Toma. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
Í fyrsta opna húsi ársins 2013 mun dr. Vilhjálmur Lúðvíksson fjalla um ávaxtarækt. Undirtitillinn er: Úr eyðimörk um skóg til aldingarðs með viðkomu í rósagarði! Vilhjálmur Lúðvíksson er formaður Garðyrkjufélags Íslands. Hann er mikill ræktunarmaður, öflugur leiðtogi félagsins, sérfræðingur í rósum og hugsjónamaður sem drífur aðra áfram. Opna húsið verður miðvikudaginn 23. janúar, boðið í [...]