Við höldum okkar góða takti og efnum til Neskirkjuhlaups næstkomandi uppstigningardag, fimmtudaginn 14. maí kl. 9.30. Dagskráin hefst inni í kirkjuskipinu þar sem boðið er upp á hvetjandi helgistund og stutta upphitun. Að því loknu fer hver á sínum hraða eftir sóknarmörkum Nessóknar, alls 10 km. Einnig má fara styttri leið. Við ljúkum svo hlaupinu í safnaðarheimilinu þar sem við bjóðum upp á heilnæmar veitingar. Hlaupið hentar fólk á öllum aldri og í alls kyns formi!