Árlegir sólstöðutónleikar Steingríms Þórhallssonar, organista Neskirkju, fara fram sunnudaginn 21. desember kl. 17.
Í viðbót við frumsamin píanóverk frá liðnum árum bætast við ellefu ný sönglög við ljóð Valdimars Tómassonar úr bók hans Vetrarland.
Lögin eru líkt og ljóðin augnablik í íslenskri náttúru, og tengjast vetrartímanum og sér í lagi þessu fallega augnabliki, vetrarsólstöðum, þegar daginn tekur að lengja.
Einnig verður frumflutt vetrarsólstöðulag ársins 2025.
Flytjendur eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Tinna Sigurðardóttir sópran, og Steingrímur Þórhallsson tenór og píanó.