Krossgötur mánudaginn 29. september kl. 13.00. Vigfús Bjarni Albertsson, prestur og rithöfundur fjallar um bók sína: Sár græða sár: Í nærveru sorgar. Í bók sinni sem er sjálfstætt framhald af bókinni Hver vegur að heiman er vegur heim ræðir höfundurinn hvernig best megi nýta meðöl sálgæslunnar, möguleika hennar, en líka styrkleika okkar og veikleika.
Umfram allt skiptir máli að við áttum okkur á eigin stöðu í heimi áfalla og úrvinnslu. Kaffiveitingar