Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur, leikir og gleði í sunnudagskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Kirkjukaffi að messu lokinni.