Sunnudaginn 3. desember kl. 17:00 fjöllum við um nýja útgáfu á Sálmabók Guðbrands Þorlákssonar í Neskirkju. Fyrsta útgáfa sálmabókarinnar var prentuð á Hólum í Hjaltadal 1589 og heitir: „Ein ný sálmabók með mörgum andlegum sálmum …“ Í sálmabók Guðbrands eru nótur með mörgum sálmanna sem segja má að hafi verið nýjung í slíkri útgáfu og hafði mikil áhrif á guðsþjónustuhald og menningu. SÞessi rit höfðu mikil áhrif á þróun kveðskapar, söngs og tónlistar í landinu og áttu einnig drjúgan þátt í varðveislu íslenskunnar og eru því mikilvæg fyrir íslenska málsögu og tónlistarsögu. Með þeim voru kynntir fjölmargir erlendir bragarhættir og jafnframt var ýtt undir skáld að yrkja sálma og veraldleg kvæði á íslensku.
Jón Torfason: Greinargerð um útgáfu sálmabóka 16. aldar.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir: Sálmalögin sem sungin voru.
Kristján Eiríksson: Nýir bragarhættir.
Skúli S. Ólafsson: Nokkur orð um Guðbrand og vin hans Einar í Heydölum.