Tónleikar í Neskirkju 2. desember kl. 16:00. Kór Neskirkju flytur óratóríuna Messías eftir Handel í tilefni af 20 ára afmæli kórsins í núverandi mynd og undir stjórn Steingríms Þórhallsonar. Þetta er fjórða sinn sem kórinn flytur verkið og nú í samvinnu við hljómsveit og framúrskarandi einsöngvara undir stjórn Steingríms. Kórinn minnist einnig þessara tímamóta með sýningu á veggspjöldum sem spanna 20 ára tónleikasögu kórsins. Líta má sýninguna í tónleikahléi. 

Flytjendur:
Kór Neskirkju
Stjórnandi: Steingrímur Þórhallsson
Konsertmeistari: Una Sveinbjarnardóttir
Hallveig Rúnarsdóttir sópran
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzosópran
Gissur Páll Gissurarson tenór
Hrólfur Sæmundsson baritón

Miðasala á tix.is og við inngang
Miðasöluhlekkur: https://tix.is/is/event/16530/messias-eftir-handel-kor-neskirkju/

Í ár eru 281 ár liðin frá frumflutningi á óratóríunni Messías, en verkið stendur enn óhaggað sem ein af stærstu táknmyndum evrópskrar tónlistar og heldur áfram að höfða til milljóna áheyrenda um allan heim, á öllum menningarsvæðum og af öllum trúarbrögðum. 

Messías er ástsælasta verk Händels og jafnframt eitt vinsælasta og þekktasta verk allra tíma.  Verkið var samið á einungis 24 dögum sumarið 1741 og frumflutt á góðgerðartónleikum í Dublin á vormánuðum 1742. Frumflutningurinn var auglýstur 1. apríl 1742 í dagblaðinu „Dublin Journal“ og auglýsingin hljóðaði eitthvað á þessa leið: „Þær dömur sem heiðra þennan frumflutning með nærveru sinni eru vinsamlegast beðnar að koma án þess að hafa hringi í kjólum sínum til þess að koma megi fyrir fleiri gestum og auka þannig fé til góðgerðarmála. Herramenn eru beðnir að koma án sverða sinna.“ Verkið varð strax mjög vinsælt og voru allar sýningar fyrir fullu húsi. 

Texti verksins er að mestu tekinn óbreyttur úr King James útgáfunni af Biblíunni og var raðað saman af Charles Jennens, aðaltextahöfundi Händels. Verkið skiptist í þrjá hluta. Í fyrsta hluta er koma Krists boðuð og sagt frá fæðingu frelsarans í kórkaflanum „For unto us a child is born“ (Því að barn er oss fætt). Í öðrum hluta er fjallað um þjáningu og dauða Jesú með dramatískum hætti. Þar er m.a. hin harmþrungna alt aría  „He was despised“ (Hann var fyrirlitinn). Annar hluti endar samt sem áður á bjartsýnum og sigrihrósandi nótum með hinum þekkta Hallelúja-kór. Þriðji hlutinn er nokkurs konar eftirmáli einkum um upprisuna og endurlausn. Þar er m.a. að finna hina skínandi sópran aríu „I know that my redeemer liveth“ (Ég veit að lausnari minn lifir) og stórkostlega kórkafla í lokin, „Worthy is the Lamb“ (Maklegt er lambið) og „Amen“.