Í eitt og hálft ár núna hefur verið móttaka í Neskirkju fyrir flóttafólk í Úkraínu. Nú vilja þau sem hafa skipulagt söfnunina fyrir þennan hóp, ásamt flóttafólkinu, bjóða Grindvíkingum að koma í Neskirkju á mánudögum og fimmtudögum í vetur. Móttakan er opin frá kl 18:00-19:30 og heitt á könnunni. Allir sem vilja leggja söfnuninni lið og gefa föt, leikföng eða búsháhöld eru velkomin frá kl 17:30 en þá eru sjálfboðaliðar mættir í hús til að taka á móti. Móttakan er í kjallara Neskirkju og inngangur neðantil í kirkjunni.